Juventus og Chelsea gætu reynt að fá Anthony Martial í sínar raðir frá Manchester United í janúar samkvæmt heimildum Sky Sports.
Martial á rúmlega eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við United en viðræður um nýjan samning hafa gengið afar illa.
Martial á rúmlega eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við United en viðræður um nýjan samning hafa gengið afar illa.
Langt ber á milli hjá samningaviðræðunum og því gæti United mögulega skoðað sögu á Martial.
Chelsea hefur áhuga á að kaupa Martial í janúar ef félagið nær að selja einn af sínum mönnum til að fá pening inn.
Juventus hefur einnig áhuga á Martial en Frakkinn hefur verið öflugur í síðustu leikjum Manchester United.
Athugasemdir