Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 21. nóvember 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Icardi skoraði loksins með landsliðinu
Mynd: Getty Images
Mauro Icardi, framherji Inter, skoraði sitt fyrsta mark með landsliði Argentínu í 2-0 sigri á Mexíkó í vináttuleik í nótt.

Þetta var áttundi leikur Icardi með argentínska landsliðinu og það var léttir hjá honum að ná fyrsta markinu.

„Ég er ánægður. Ég beið eftir þessu og við töluðum mikið um þetta. Fyrir framherja er ljótt að skora ekki mörk. Ég vona að þetta haldi svona áfram," sagði Icardi eftir leik.

Icardi var ekki í argentísnka landsliðshópnum á HM í sumar en hann fékk sénsinn í gær.

Hér má sjá mark hans.

Athugasemdir
banner
banner
banner