Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 21. nóvember 2018 11:39
Magnús Már Einarsson
Liverpool ekki í beinni um helgina - Fyrsta skipti í langan tíma
United verður í beinni á laugardaginn.
United verður í beinni á laugardaginn.
Mynd: Getty Images
Leikur Watford og Liverpool verður ekki í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 15:00 á laugardag. Stöð 2 Sport má einungis sýna einn leik klukkan 15:00 og að þessu sinni er það leikur Manchester United og Crystal Palace.

Þetta er í annað skipti á þessu tímabili sem Manchester United og Liverpool eiga bæði leik klukkan 15:00 á laugardegi.

Það er áhugavert í ljósi þess að þetta hafði ekki gerst í tvö ár þar til að liðin áttu bæði leik klukkan 15:00 á laugardegi í september síðastliðnum.

Þá sýndi Stöð 2 Sport leik Liverpool og Southampton á meðan leikur Manchester United og Wolves var ekki sýndur.

Breyting verður á um helgina en þá fá stuðningsmenn Manchester United að sjá leikinn gegn Crystal Palace í beinni.
Athugasemdir
banner
banner