PSG fékk slæmar fréttir í gær þegar Neymar og Kylian Mbappe fóru báðir meiddir af velli í leikjum með landsliðum sínum.
PSG mætir Liverpool í gífurlega mikilvægum leik í Meistaradeildinni í næstu viku. Ekki hefur verið gefið út hvort leikmennirnir nái þeim leik en meiðsli þeirra eru í fyrstu ekki talin mjög alvarleg.
Mbappe meiddist á öxl í 1-0 sigri Frakklands á Úrugvæ í vináttuleik og var skipt af velli.

„Hann er meiddur á öxl eftir að hafa lent illa. Við þurfum að sjá þetta á eftir hjá læknaliðinu. Ég vona að þetta sé ekki slæmt," sagði Didier Deschamps landsliðsþjálfari Frakka eftir leikinn í gær.
Neymar meiddist á nára í vináttuleik Brasilíu og Kamerún og fór af velli eftir einungis sjö mínútur.
„Takk allir fyrir skilaboðin um skjótan bata. Ég held að þetta sé ekki alvarlegt," sagði Neymar á Instagram eftir leik.
Athugasemdir