Sóknarmaðurinn Óttar Magnús Karlsson er til skoðunar hjá danska félaginu Vendsyssel þessa dagana.
Óttar spilaði 78 mínútur með varaliði Vendsyssel í 1-1 jafntefli gegn Midtjylland í gær.
Óttar er samningsbundinn norska félaginu Molde en á þessu ári var hann á láni hjá Trelleborg í sænsku úrvalsdeildinni.
Hinn 21 árs gamli Óttar sló í gegn með Víkingi í Pepsi-deildinni árið 2016 en í kjölfarið keypti Molde hann.
Vendsyssel er í tólfta sæti af fjórtán liðum í dönsku úrvalsdeildinni en Jón Dagur Þorsteinsson spilar með liðinu.
Athugasemdir