Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 21. nóvember 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Pulisic ætlar að ræða við Dortmund í janúar
Mynd: Getty Images
Christian Pulisic ætlar að ræða framtíð sína hjá Borussia Dortmund í janúar.

Hinn tvítugi Pulisic hefur verið orðaður við Chelsea en hann er á eftir Jadon Sancho í röðinni hjá Dortmund.

Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála hjá Dortmund, sagði á dögunum að framtíð Bandaríkjamannsins yrði rætt eftir tímabilið.

Pulisic vill hins vegar sjálfur ekki útiloka að eitthvað gerist í janúar.

„Ég er með einbeitingu hjá Dortmund og við erum að eiga frábært tímabil. Þegar hléið kemur (í janúar) þá mun ég alltaf ræða við Dortmund um framtíð mína," sagði Pulisic.
Athugasemdir
banner
banner