Fotbolti.net
21.12.22 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Jói Berg á Old Trafford

Jóhann Berg Guðmundsson fer á Old Trafford

Jóhann Berg Guðmundsson fer á Old Trafford

Canon

Mynd: Getty Images

Sextán liða úrslit enska deildabikarsins halda áfram í kvöld með þremur leikjum. Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og hans menn í Burnley mæta Manchester United á Old Trafford.
Fyrrum Valsarinn, Dean Holden, stýrir væntanlega Charlton í fyrsta sinn er liðið fær öflugt lið Brighton í heimsókn klukkan 19:45 en á sama tíma spila nýliðar úrvalsdeildarinnar, Nottingham Forest, við Blackburn Rovers á Ewood Park.

Klukkan 20:00 er svo leikur Manchester United og Burnley á Old Trafford. United verður án nokkurra lykilmanna í þessum leik þar sem leikmenn eru að koma til baka eftir heimsmeistaramótið.

Jóhann Berg verður væntanlega í hópnum hjá Burnley.

Leikir dagsins:
19:45 Charlton Athletic - Brighton
19:45 Blackburn - Nott. Forest
20:00 Man Utd - Burnley
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.