Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. janúar 2019 22:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Faxaflóamótið: ÍA lagði Augnablik að velli
Erla Karitas skoraði fyrir ÍA.
Erla Karitas skoraði fyrir ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augnablik 0 - 1 ÍA
0-1 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('49)

Spilað var í Faxaflóamótinu í kvöld og þar mættust Augnablik og ÍA í B-riðli. Leikurinn fór fram í Fífunni í Kópavogi. Bæði þessi lið koma til með að spila í Inkasso-deildinni.

Það var ekki mikið sem skildi liðin að í kvöld, aðeins eitt mark. Það kom snemma í síðari hálfleik og var þar að verki Erla Karitas Jóhannesdóttir fyrir ÍA.

Augnablik náði ekki að svara og lokatölur því 1-0 fyrir Skagastelpur. Gott veganesti fyrir þær.

Eftir leik kvöldsins eru bæði ÍA og Augnablik búin að leika tvo leiki. ÍA hefur unnið báða leiki sína en Augnablik er með þrjú stig, eftir sigur í fyrsta leiknum gegn Álftanesi en tap í kvöld.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner