Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 22. janúar 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Hazard: Ég pirra alla stjóra mína
Mynd: Getty Images
Eden Hazard segist hafa pirrað alla knattspyrnustjóra sína í gegnum tíðina.

Hazard hefur spilað undir stjórn Jose Mourinho, Guus Hiddink, Antonio Conte og Maurizio Sarri hjá Chelsea síðan árð 2012 en hann hefur stundum legið undir gagnrýni fyrir að taka því of rólega í varnarleiknum.

„Ég pirraði ekki bara Conte," sagði Hazard við France Football.

„Á ferli mínum hef ég pirrað alla þjálfara mína. Ég hef pirrað Sarri, og ég hef pirrað Mourinho."

„Þeir telja að ég þurfi að dekka meira, gera meira af þessu og meira af hinu. Ég mun líka pirra næsta þjálfara sem ég verð með."

Athugasemdir
banner