Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. janúar 2019 15:23
Elvar Geir Magnússon
Inter vill Bergwijn og Darmian
Steven Bergwijn.
Steven Bergwijn.
Mynd: Getty Images
Inter á ítalíu hefur látið PSV Eindhoven vita að félagið vill fá hollenska vængmanninn Steven Bergwijn.

De Telegraaf segir að Manchester United hafi líka sýnt þessum 21 árs leikmanni áhuga og verðmiðinn gæti farið upp í 30 milljónir evra.

Bergwijn lék vel með PSV gegn Inter í Meistaradeildinni í vetur en hann er með níu mörk og átta stoðsendingar í sautján leikjum í hollensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. PSV trónir á toppnum.

Þá vill Inter einnig fá bakvörðinn Matteo Darmian frá Manchester United. Darmian er einnig á óskalista Juventus.

Calciomercato.com segir að Inter sé tilbúið að borga Darmian hærri laun en hann fengi hjá Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner