Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. janúar 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Scholes líklegastur til að taka við Oldham
Paul Scholes.
Paul Scholes.
Mynd: Getty Images
Paul Scholes, fyrrum miðumaður Manchester United, þykir líklegastur til að taka við Oldham Athletic.

Scholes hefur átt í viðræðum við Abdallah Lemsagam eiganda Oldham og hann skoðar nú tilboð frá félaginu.

Scholes var stuðningsmaður Oldham í æsku, en það var líka rætt við hann um stjórastarfið þar í október 2017. Þá fékk hann ekki starfið.

Oldham spilar í ensku D-deildinni en liðið siglir lygnan sjó í 12. sæti deildarinnar.

Scholes er 44 ára. Hann vann 11 Englandsmeistaratitla, þrjá FA-bikara og tvo Meistaradeildartitla sem leikmaður Manchester United. Scholes hefur lítið þjálfað síðan hann hætti að spila, en hann var um stutt skeið í þjálfaraliði Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner