Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. janúar 2020 10:07
Magnús Már Einarsson
Eriksen þrýstir á skipti til Inter
Mynd: Getty Images
Christian Eriksen, leikmaður Tottenham, fundaði með Daniel Levy formanni félagsins í gær.

Þar ítrekaði Eriksen þá ósk sína að ganga til liðs við Inter í þessum mánuði.

Eriksen verður samningslaus í sumar og hann hefur náð samkomulagi við Inter. Daninn vill hins vegar ganga frá félagaskiptunum í þessum mánuði.

Inter hefur boðið ellefu milljónir punda plús bónusa í Eriksen en Tottenham vill fá 17 milljónir punda.

Martin Schoots, umboðsmaður Eriksen, ætlar að funda með Levy eftir leikinn gegn Norwich í kvöld og reyna að finna lausn á málunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner