Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 22. janúar 2021 11:27
Elvar Geir Magnússon
Segja að Ödegaard sé á leið til Arsenal
Ödegaard er 22 ára.
Ödegaard er 22 ára.
Mynd: Getty Images
Football.london. segir að Arsenal sé nálægt því að tryggja sér Martin Ödegaard á lánssamningi frá Real Madrid út tímabilið.

Edu, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal, er sagður hafa sannfært föður leikmannsins og umboðsmanninn hans, Björn Tore Kvarme, að best sé fyrir norska landsliðsmanninn að koma til Arsenal.

Sagt er að lánssamningurinn muni ekki innihalda neitt ákvæði um kaup á Ödegaard í framtíðinni.

Marca greindi frá því í vikunni að Ödegaard hefði beðið um að fá að yfirgefa Real Madrid. Miðjumaðurinn hefur aðeins spilað 232 mínútur í La Liga á þessu tímabili og vill fá meiri spiltíma.

Samband Arsenal við Real Madrid er gott en enska liðið er með Dani Ceballos á láni frá spænska stórliðinu.
Athugasemdir
banner
banner