Arsenal og Manchester United mætast í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:30 á Emirates-leikvanginum. Wout Weghorst er fremsti maður hjá United.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, breytir ekki sigurliði, en hann stillir upp nákvæmlega sama lið og í 2-0 sigrinum á Tottenham.
Leandro Trossard, nýr leikmaður liðsins, er á bekknum í dag.
Erik ten Hag, stjóri Man Utd, neyðist hins vegar til að breyta til því brasilíski miðjumaðurinn Casemiro er í banni og kemur Scott McTominay inn fyrir hann.
Arsenal: Ramsdale; White, Saliba, Gabriel, Zinchenko; Xhaka, Partey; Saka, Odegaard, Martinelli; Nketiah
Man Utd: De Gea, Wan Bissaka, Varane, Martinez, Shaw, Eriksen, McTominay, Bruno Fernandes, Antony, Rashford, Weghorst.
Athugasemdir