Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. janúar 2023 13:08
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í enska: De Bruyne og Laporte koma inn í lið Man City
Kevin de Bruyne er kominn aftur í lið Man City
Kevin de Bruyne er kominn aftur í lið Man City
Mynd: EPA
Max Wöber byrjar hjá Leeds
Max Wöber byrjar hjá Leeds
Mynd: Leeds
Manchester City tekur á móti Wolves á Etihad-leikvanginum í ensku úrvalsdeildnni klukkan 14:00. Pep Guardiola gerir aðeins tvær breytingar á liði sínu frá 4-2 sigrinum gegn Tottenham.

Guardiola var með Kevin de Bruyne og Aymeric Laporte á bekknum hjá Tottenham en þeir snúa aftur í liðið í dag fyrir þá Nathan Aké og Julian Alvarez.

Það eru einu breytingarnar sem Guardiola gerir á meðan Julen Lopetegui gerir sex breytingar á liði Wolves. Mario Lemina byrjar á miðjunni á meðan Pablo Sarabia er á bekknum.

Man City: Ederson; Lewis, Stones, Akanji, Laporte, Rodri, De Bruyne, Gundogan, Mahrez, Grealish, Haaland

Wolves: Sa; Semedo, Collins, Kilman, Bueno, Lemina, Neves, Nunes, Traore, Jimenez, Hwang

Leeds United tekur á mót Brentford á Elland Road. Max Wöber byrjar fyrsta leik sinn fyrir Leeds og er það eina breyting Jesse Marsch, en Liam Cooper er frá vegna meiðsla.

Rico Henry og Mads Roerslev koma þá inn í lið Brentford.

Leeds: Meslier, Ayling, Koch, Wober, Struijk, Roca, Adams, Harrison, Aaronson, Gnonto, Rodrigo.

Brentford: Raya, Ajer, Pinnock, Mee, Roerslev, Dasilva, Norgaard, Jensen, Henry, Toney, Mbeumo
Athugasemdir
banner
banner
banner