Fotbolti.net
22.01.23 - 09:35
Elvar Geir Magnússon

Líkleg byrjunarlið Arsenal og Man Utd

Leikurinn hefst klukkan 16:30

Partey verður á miðju Arsenal en Casemiro í banni hjá Man Utd.

Partey verður á miðju Arsenal en Casemiro í banni hjá Man Utd.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal getur aftur náð átta stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni ef liði vinnur Manchester United á Emirates vellinum í dag.

Gabriel Jesus og Reiss Nelson eru enn á meiðslalistinum og verða ekki með Arsenal en Leonard Trossard, sem keyptur var frá Brighton, mun væntanlega byrja á bekknum.
Manchester United verður án lykilmanns þar sem Casemiro tekur út leikbann vegna uppsafnaðra áminninga.

Á meiðslalista United eru Donny van de Beek (frá út tímabilið), Anthony Martial og Diogo Dalot. Þá er Jadon Sancho ekki klár í slaginn.

Mirror spáir byrjunarliðunum svona:

Líklegt byrjunarlið Arsenal gegn Man Utd (4-3-3): Ramsdale; White, Saliba, Gabriel, Zinchenko; Ödegaard, Partey, Xhaka; Saka, Nketiah Martinelli.

Líklegt byrjunarlið Man Utd gegn Arsenal (4-2-3-1): De Gea; Wan-Bissaka, Varane, Martinez, Shaw; Fred, Eriksen; Antony, Fernandes, Rashford; Weghorst.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.