Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. janúar 2023 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Þungavigtarbikarinn: Auðvelt hjá Stjörnumönnum
Guðmundur Kristjánsson skoraði fyrir Stjörnumenn
Guðmundur Kristjánsson skoraði fyrir Stjörnumenn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 5 - 1 HK
Mörk Stjörnunnar: Guðmundur Kristjánsson, Helgi Fróði Ingason, Daníel Finns Matthíasson, Örvar Logi Örvarsson og Joey Gibbs.
Mark HK: Atli Þór Jónasson

Stjarnan vann HK örugglega, 5-1, í A-riðli Þungavigtarbikarsins í Miðgarði í dag.

Þetta var einstefna hjá Stjörnumönnum sem skoruðu fimm gegn HK-ingum.

Guðmundur Kristjánsson, sem kom frá FH eftir síðasta tímabil, komst á blað og það gerði hinn 17 ára gamli Helgi Fróði Ingason líka. Daníel Finns Matthíasson, Örvar Logi Örvarsson og Joey Gibbs skoruðu einnig.

Atli Þór Jónasson, sem samdi við HK-inga á dögunum, gerði mark liðsins.

Stjarnan hafnar í 2. sæti A-riðils með 3 stig á meðan HK er í neðsta sætinu og án stiga. Stjarnan spilar við Keflavík um 3. sætið á meðan HK mætir ÍBV í leik um 5. sæti mótsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner