Fotbolti.net
22.02.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Stórleikir í London og Leicester

Abraham er kominn úr meiðslum.

Abraham er kominn úr meiðslum.

Canon

Mynd: Getty Images

Helgin í ensku úrvalsdeildinni fer af stað með látum þegar Chelsea tekur á móti Tottenham í hörkuslag. Þarna er um að ræða mikilvægan leik í Meistaradeildarbaráttunni og hatrammann nágrannaslag.
Eitt stig skilur liðin að í Meistaradeildarbaráttunni, þar sem Chelsea situr í fjórða sæti og Tottenham fimmta.

Jose Mourinho mætir aftur á Brúnna en lærisveinar hans töpuðu á heimavelli gegn RB Leipzig fyrr í vikunni.

Bæði lið eru án lykilmanna vegna meiðsla en Tammy Abraham og Ruben Loftus-Cheek eru þó komnir aftur í leikmannahóp Chelsea. N'Golo Kante er þó kominn á meiðslalistann, þar sem Callum Hudson-Odoi og Christian Pulisic voru einnig fyrir.

Tottenham verður án Son Heung-min en Harry Kane og Moussa Sissoko eru enn á meiðslalistanum.

Jóhann Berg Guðmundsson er þá í leikmannahópi Burnley sem tekur á móti Bournemouth. Southampton á leik við Aston Villa á meðan Newcastle mætir Crystal Palace og Sheffield United spilar við Brighton.

Deginum lýkur svo á stórleik Leicester og Manchester City, sem eru í baráttu um annað sæti deildarinnar.

Man City er fjórum stigum á undan en það er svo gott sem ómögulegt að ná toppliði Liverpool, sem er með ótrúlega 22 stiga forystu.

Leikir dagsins:
12:30 Chelsea - Tottenham (Síminn Sport)
15:00 Sheffield Utd - Brighton
15:00 Southampton - Aston Villa
15:00 Crystal Palace - Newcastle
15:00 Burnley - Bournemouth
17:30 Leicester - Man City (Síminn Sport)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.