Fotbolti.net
22.02.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn í dag - Stórliðin í beinni útsendingu

Spánn í dag - Stórliðin í beinni útsendingu
Canon

Mynd: Getty Images

Celta Vigo og Leganes eigast við í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum. Leikurinn fer af stað í hádeginu og er þetta fyrsti leikur Leganes eftir söluna á Martin Braithwaite til Barcelona.
Leganes og Celta eru í harðri fallbaráttu og því er mikið undir í dag.

Barcelona tekur svo á móti Eibar og getur hirt toppsætið af Real Madrid með sigri. Það gæti þó aðeins orðið tímabundin gleði því Real Madrid heimsækir Levante seinna um kvöldið.

Leikir Barca og Real Madrid verða báðir sýndir beint rétt eins og viðureign Real Sociedad og Valencia klukkan 17:30. Liðin eru í harðri Evrópubaráttu og verður áhugavert að sjá hvernig leikmenn Valencia bregðast við eftir 4-1 tap gegn Atalanta í vikunni.

Leikir dagsins:
12:00 Celta - Leganes
15:00 Barcelona - Eibar (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Real Sociedad - Valencia (Stöð 2 Sport 3)
20:00 Levante - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.