Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 22. mars 2019 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Einar verður klár: Gert þetta á tímabilinu
Icelandair
Aron Einar í leiknum.
Aron Einar í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson lék rúmar 60 mínútur þegar Ísland vann 2-0 sigur gegn Andorra í fyrsta leik í undankeppni EM 2020.

„Ég er ánægður með hvernig við stóðum að þessu; þetta var fagmannlega klárað hjá okkur. Þetta var það sem við lögðum upp með," sagði Aron eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Andorra 0 -  2 Ísland

„Við vorum búnir að undirbúa okkur vel og ég er ánægður með hvernig við stóðum okkur í þessum leik."

Óvíst var fyrir leikinn hvort Aron myndi spila.

„Við æfðum í gær og mér leið vel eftir æfingu. Ákvörðunin var tekin eftir það. Líkaminn er ágætur núna. Undirlagið og gervigrasið er ekkert frábært, en við ætluðum ekki að fara að kvarta mikið yfir því. Ég er ánægður með hvernig þetta þróaðist."

Aron verður klár gegn Frökkum.

„Það er fyndið. Það er svolítið búið að búa svolítið til. Ég er búinn að gera þetta á tímabilinu, að spila laugardag, þriðjudag og laugardag. Ég verð klár á móti Frökkum, það er 100%."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner