Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. mars 2019 09:54
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið U21: Fyrsti leikur Arnars og Eiðs
Leikurinn sýndur beint gegnum Youtube
Jón Dagur Þorsteinsson er fyrirliði.
Jón Dagur Þorsteinsson er fyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 ára lið karla leikur í dag fyrsta leik sinn undir stjórn nýrra þjálfara, þeirra Arnars Þórs Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen. Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt.

Í byrjunarliðinu má meðal annars finna son Eiðs, Svein Aron Guðjohnsen.

Leikurinn, sem er gegn Tékklandi, fer fram á Pinatar á Spáni og hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma.

Eftir leik mun íslenska liðið halda til Katar þar sem leikinn verður vináttulandsleikur gegn heimamönnum.

Byrjunarlið Íslands:
Patrik Sigurður Gunnarsson (m) - Brentford
Alfons Sampsted - Norrköping
Torfi Tímoteus Gunnarsson - KA
Axel Óskar Andrésson - Viking Stafangri
Alex Þór Hauksson - Stjarnan
Jón Dagur Þorsteinsson (f) - Vendsyssel
Hörður Ingi Gunnarsson - ÍA
Sveinn Aron Guðjohnsen - Ravenna
Willum Þór Willumsson - BATE
Dagur Dan Þórhallsson - Mjöndalen
Kolbeinn Birgir Finnsson - Brentford

Hægt verður að horfa á leikinn í beinni útsendingu hér:

Athugasemdir
banner
banner
banner