Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. mars 2019 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fletcher: Gátu þessir leikmenn ekki þraukað einn leik?
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Darren Fletcher, fyrrum landsliðsfyrirliði Skotlands, var vægast sagt pirraður eftir leik Skotlands og Kasakstan í gær. Kasakstan vann óvæntan 3-0 sigur á gervigrasinu í Astana.

Fletcher setti spurningarmerki á fjarveru leikmanna eins og Robert Snodgrass, Ryan Fraser, Steven Fletcher, Matt Ritchie, Tom Cairney og Callum Paterson.

Fletcher sagði að einhverjir af þessum leikmönnum höfðu spilað i síðustu leikjum sinna félagsliða og er ekki hrifinn af því að þeir hafi ekki harkað af sér í þennan eina leik fyrir landsliðið.

„Mér finnst þetta pirrandi en ég trúi ekki að þeir hafi ekki getað spilað í þessum leik," sagði Fletcher við BBC Radio 5 Live í gærkvöldi.

„Ég hefði kannski sýnt skilning ef þetta væru aðstæðurnar í hverri einustu viku en þetta er einn landsleikur á gervigrasi og svo búið."

„Ég skil vel að þetta séu ekki kjöraðstæður en ég hefði samt viljað að menn hefðu mætt í þennan leik."

„Þetta gæti verið félagsliðunum að kenna, það er mikill peningur í spilunum og meiðsli geta kostað mikið. Ef ég hefði verið í þeirra sporum hefði ég gefið kost á mér."

„Við mætum San Marínó á sunnudag og öll nótt er ekki úti enn."
Athugasemdir
banner
banner