Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 22. mars 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kovacic langar ekki aftur til Real - Vill vera áfram í Úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Mateo Kovacic kom frekar óvænt á eins árs lánssamningi frá Real Madrid til Chelsea síðasta sumar. Mörg lið voru á eftir kappanum en króatíski miðjumaðurinn endaði í Chelsea. Kovacic var ekki byrjunarliðsmaður hjá Real Madrid og voru lið eins og Juventus, og Manchester United og City á eftir honum síðasta sumar.

Chelsea er ekki líklegt til að halda Kovacic sem hefur átt upp og ofan tímabil hjá Chelsea. Chelsea er á leið í félagskiptabann og lánssamningurinn inniheldur ekki kaupákvæði.

Samkvæmt spænska blaðinu Marca langar Kovacic ekki neitt til baka til Real. Hann langar til að vera áfram í ensku Úrvalsdeildinni.

Samkvæmt þeirra heimildum eru nokkur Úrvalsdeildarfélög á eftir honum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner