Matthías Vilhjálmsson lék með Vålerenga þegar liðið gerði jafntefli gegn Lilleström í æfingaleik í dag. Bæði lið eru í norsku úrvalsdeildinni.
Matthías er 32 ára en hann færði sig um set í janúarmánuði þegar hann yfirgaf Rosenborg og gekk í raðir Vålerenga.
Byrjun hans í búningi Vålerenga er lofandi en hann hefur verið að skora nokkuð á undirbúningstímabilinu.
Hann setti þrennu í dag. Eitt markið kom úr vítaspyrnu.
Þess má geta að Vålerenga hafnaði í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar í fyrra.
Hattrick Vilhjálmsson!
— Johan Sjøbakk Lund (@johanlund) March 22, 2019
Athugasemdir