Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 22. mars 2019 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mun Arsenal sakna Ramsey? - „Minnir mig á Giroud"
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey er á förum frá Arsenal í sumar. Hann mun ganga í raðir Ítalíumeistara Juventus.

Ramsey hefur verið hjá Arsenal frá 2008 og spilað nokkuð stórt hlutverk síðustu ár. Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan, sem er einn af hörðustu stuðningsmönnum Arsenal, telur þó ekki að liðið muni sakna Ramsey.

„Aaron Ramsey minnir mig á Olivier Giroud. Þeir eru báðir mjög góðir fótboltamenn, en við höfum ekki saknað Giroud og við munum ekki sakna Ramsey eins og fólk hefur verið að tala um," sagði Piers á Talksport.

„Hann hefur verið góður leikmaður fyrir Arsenal, en hann hefur ekki byrjað marga leiki undir stjórn Emery."

„Veltur framtíð Arsenal á Ramsey? Ég held ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner