fös 22. mars 2019 11:40
Ívan Guðjón Baldursson
Níu stig dregin af Birmingham
Mynd: Getty Images
Stjórn neðri deilda enska boltans hefur ákveðið að draga níu stig af Birmingham City sem leikur í Championship deildinni.

Stigin eru dregin af Birmingham vegna brota á reglum um fjármálaháttvísi. Félagið tapaði rétt tæplega 40 milljónum punda á síðasta fjármálaári vegna óhóflegra leikmannakaupa en 14 leikmenn voru keyptir þegar Harry Redknapp rétt bjargaði félaginu frá falli niður í C-deild.

„Fjármál félagsins er hlutverk framkvæmdastjóra og forseta, þeir hljóta að vita hversu mikinn pening má nota. Ég vissi ekkert um þessar fjármálareglur, það var enginn hjá félaginu sem varaði mig við," sagði Redknapp í viðtali við Telegraph.

„Ég tók ekki einu sinni ákvörðun um að kaupa marga af þessum leikmönnum, það voru nokkrir sem komu inn sem ég hafði aldrei séð spila. Fólk fyrir ofan mig tók þessar ákvarðanir."

Birmingham er búið að vera í umspilsbaráttu á tímabilinu en situr um miðja deild með 50 stig eftir fjóra tapleiki í röð. Refsingin gerir það að verkum að félagið fer niður í 18. sæti, 5 stigum fyrir ofan fallsæti, og gerir algjörlega út um vonir þess að komast upp í úrvalsdeildina í ár.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 38 25 7 6 70 28 +42 82
2 Leicester 37 26 4 7 74 33 +41 82
3 Ipswich Town 38 24 9 5 80 49 +31 81
4 Southampton 36 22 7 7 73 47 +26 73
5 West Brom 38 19 9 10 59 36 +23 66
6 Norwich 38 18 7 13 69 54 +15 61
7 Hull City 37 16 10 11 53 46 +7 58
8 Coventry 37 15 12 10 59 43 +16 57
9 Preston NE 37 16 8 13 49 54 -5 56
10 Middlesbrough 38 16 6 16 53 52 +1 54
11 Cardiff City 38 16 5 17 43 51 -8 53
12 Sunderland 38 14 6 18 48 45 +3 48
13 Watford 38 12 12 14 53 51 +2 48
14 Bristol City 38 13 8 17 42 45 -3 47
15 Swansea 38 12 10 16 48 58 -10 46
16 Millwall 38 11 10 17 36 50 -14 43
17 Blackburn 38 11 9 18 51 64 -13 42
18 Plymouth 38 10 11 17 54 62 -8 41
19 Stoke City 38 11 8 19 35 53 -18 41
20 QPR 38 10 10 18 36 50 -14 40
21 Birmingham 38 10 9 19 42 59 -17 39
22 Huddersfield 38 8 15 15 42 61 -19 39
23 Sheff Wed 38 11 5 22 30 61 -31 38
24 Rotherham 38 3 11 24 30 77 -47 20
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner