Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 22. apríl 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship í dag - Heil umferð í dag
Teemu Pukki er markahæstur í deildinni. Topplið Norwich mætir Stoke í beinni útsendingu klukkan tvö.
Teemu Pukki er markahæstur í deildinni. Topplið Norwich mætir Stoke í beinni útsendingu klukkan tvö.
Mynd: Getty Images
Hvað gera Bielsa og lærisveinar hans í Leeds?
Hvað gera Bielsa og lærisveinar hans í Leeds?
Mynd: Getty Images
Heil umferð fer fram í dag í ensku Championship deildinni. Þetta er 44. umferð deildarinnar en leiknar eru 46 í heildina.

Aston Villa hefur unnið níu leiki í röð í deildinni og mætir Millwall, fjórða neðsta liði deildarinnar í hádegisleiknum. Millwall er þremur stigum fyrir ofan Rotherham sem er í fallsæti og Millwall á leik til góða.

Rotherham mætir í dag Birmingham sem er sjö stigum frá fallsæti.

Mikið einvígi er um annað sæti deildarinnar og kljást þar Leeds og Sheffield United um þetta sæti sem færir liðunum öruggt sæti í úrvalsdeildinni á komandi leiktíð. Liðin eru jöfn að stigum en Sheffield hefur betri markatölu fyrir leiki dagsins.

Leeds heimsækir Brentford í beinni útsendingu í lokaleik dagsins. Sheffield Utd fer í heimsókn til Hull.

Bristol City og Derby eru liðin sem sitja í 7. og 8. sæti deildarinnar og vonast til þess að koma bakdyramegin inn í umspilssæti.

Mánudagur 22.apríl
12:00 Aston Villa - Millwall
14:00 Blackburn - Bolton
14:00 Derby County - QPR
14:00 Hull City - Sheffield Utd
14:00 Ipswich Town - Swansea
14:00 Nott. Forest - Middlesbrough
14:00 Reading - West Brom
14:00 Rotherham - Birmingham
14:00 Sheff Wed - Bristol City
14:00 Stoke City - Norwich (Stöð2Sport2)
14:00 Wigan - Preston NE
16:15 Brentford - Leeds (Stöð2Sport2)
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
2 Leicester 42 28 4 10 79 38 +41 88
3 Leeds 43 26 9 8 76 34 +42 87
4 Southampton 41 24 9 8 81 54 +27 81
5 West Brom 43 20 12 11 66 42 +24 72
6 Norwich 43 21 8 14 76 60 +16 71
7 Hull City 42 18 11 13 62 54 +8 65
8 Coventry 42 17 12 13 66 52 +14 63
9 Middlesbrough 43 18 9 16 61 56 +5 63
10 Preston NE 42 18 9 15 56 57 -1 63
11 Cardiff City 43 18 5 20 48 60 -12 59
12 Bristol City 43 16 10 17 50 46 +4 58
13 Sunderland 43 16 8 19 52 50 +2 56
14 Swansea 43 14 11 18 53 62 -9 53
15 Watford 43 12 16 15 59 58 +1 52
16 Millwall 43 13 11 19 42 55 -13 50
17 Blackburn 43 13 10 20 57 71 -14 49
18 Plymouth 43 12 12 19 58 66 -8 48
19 QPR 43 12 11 20 40 57 -17 47
20 Stoke City 43 12 11 20 41 60 -19 47
21 Birmingham 43 12 9 22 48 64 -16 45
22 Huddersfield 43 9 17 17 47 70 -23 44
23 Sheff Wed 43 12 8 23 36 67 -31 44
24 Rotherham 43 4 11 28 32 85 -53 23
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner