Brentford 2 - 0 Leeds
1-0 Neal Maupay ('45 )
2-0 Sergi Canos ('62 )
1-0 Neal Maupay ('45 )
2-0 Sergi Canos ('62 )
Leeds United er ekki í neitt sérstökum málum fyrir síðustu tvo leiki sína í ensku B-deildinni en liðið tapaði gegn Brentford í kvöld, 2-0.
Leeds hefur verið að leiða deildina þetta tímabilið en virðist ætla að hiksta í síðustu leikjum þess.
Neil Maupay kom Brentford yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en spænski leikmaðurinn Sergi Canos bætti við öðru á 62. mínútu.
Patrik Sigurður Gunnarsson var varamarkvörður Brentford í dag en kom ekki við sögu.
Lokatölur 2-0 fyrir Brentford sem er í 15. sæti með 58 stig en en nú er Leeds í 3. sæti með 82 stig, þremur minna en Sheffield United sem er í 2. sæti og sex stigum á eftir Norwich City sem er með 88 stig og svo gott sem komið í ensku úrvalsdeildina.
Athugasemdir