Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. apríl 2019 13:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship: Tíundi sigur Villa í röð
Kodija skoraði sigurmarkið í dag.
Kodija skoraði sigurmarkið í dag.
Mynd: Getty Images
Aston Villa 1 - 0 Millwall
1-0 Jonathan Kodjia ('30 )

Aston Villa tók á móti Millwall í fyrsta leik dagsins í ensku Championship deildinni. Tíu leikir hefjast svo klukkan 14:00 og umferðinni líkur svo með leik Brentford og Leeds klukkan 16:15.

Aston Villa hafði fyrir leikinn unnið níu síðustu leiki sína í deildinni og er á gífurlegu skriði. Villa liðið hélt sigurgöngu sinni í dag með góðum 1-0 sigri.

Jonathan Kodija skoraði sigurmark leiksins eftir hálftíma leik með skoti af stuttu færi eftir undirbúning frá Anwar El Ghazi.

Villa liðið er í fimmta sæti deildarinnar og er nánast búið að tryggja sér sæti í umspilinu. Liðið á ekki möguleika á einu af efstu tveimur sætunum. Millwall er í fjórða neðsta sæti, þremur stigum fyrir ofan Rotherham sem situr í fallsæti. Rotherham fær Birmingham í heimsókn klukkan 14:00.

Liðið hefur aldrei áður unnið tíu leiki í röð í deildarkeppni.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner