Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 22. apríl 2019 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ferdinand: Spilið fyrir nafnið framan á treyjunni - Fólk mun þá muna eftir nafninu aftan á
Mynd: Getty Images
Leikmenn Manchester United voru langt frá sínu besta gegn Everton í gær. Everton vann sannfærandi 4-0 sigur.

Everton spilaði mjög vel í leiknum og var sigurinn mjög svo verðskuldaður. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði og lagði upp mark í leiknum og var valinn maður leiksins hjá bæði BBC og Sky Sports.

Rio Ferdinand, einn af bestu varnarmönnum í sögu úrvalsdeildarinnar og fyrrum leikmaður Man Utd, setti inn áhugaverða mynd á Twitter í kjölfar tapsins hjá United í gær.

Á myndinni stendur: „Spilið fyrir nafnið sem er framan á treyjunni og þeir munu muna eftir nafninu aftan á treyjunni".

Leikmenn United hafa verið gagnrýndir fyrir að sýna ekki nægilegan vilja innan vallar og vilja sumir meina að þeir eyði of mikilum tíma í að líta vel út á samfélagsmiðlum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner