Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 22. apríl 2019 23:00
Hafliði Breiðfjörð
Hásteinsvöllur iðandi grænn og tilbúinn í Íslandsmótið
Frá Hásteinsvelli í dag.
Frá Hásteinsvelli í dag.
Mynd: Gunný
Keppni í Pepsi Max-deild karla hefst um helgina þegar heil umferð verður leikin á föstudag og laugardag.

Vellir landsins hafa verið að koma óvenju vel undan vetri en helmingur vallar deildarinnar eru þó gervigrasvellir.

Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum var gerður klár fyrir fyrsta leik um páskana og er einkar fallegur á þessum árstíma, iðandi grænn eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.

Hér að neðan má sjá leiki fyrstu umferðarinnar en ÍBV tekur á móti Fylki á laugardaginn klukkan 14:00 á Hásteinsvelli.

föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)

laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)

Athugasemdir
banner
banner