mán 22. apríl 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía í dag - Nær Atalanta í dýrmæt stig í Meistaradeildabaráttunni gegn Napoli?
Duvan Zapata hefur skorað tuttugu mörk fyrir Atalanta í deildinni á leiktíðinni.
Duvan Zapata hefur skorað tuttugu mörk fyrir Atalanta í deildinni á leiktíðinni.
Mynd: Getty Images
Lokaleikur 33. umferðar í Seríu A fer fram í kvöld. Napoli fær Atalanta í heimsókn. Napoli er í öðru sæti og eftir úrslit laugardagsins er ljóst að Juventus hefur tryggt sér titilinn. Atalanta er í sjöunda sæti deildarinnar.

Napoli datt út úr Evrópudeildinni eftir 3-0 tap samanlagt gegn Arsenal á fimmtudaginn.

Sigri Atalanta fer liðið upp í Meistaradeidarsæti þar sem liðið er með betri markatölu en AC Milan sem vermir fjórða sætið.

Spennan um fjórða sæti deildarinnar er gífurleg og hvert stig telur mikið. Napoli hefur sex stiga forskot á Inter í þriðja sætinu og þarf mikið að gerast til þess að Napoli missi annað sætið til Inter.

Mánudagur:
17:00 Napoli - Atalanta (Stöð 2 Sport 4)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner
banner