Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. apríl 2019 18:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Meistaradeildarbarátta Atalanta á lífi eftir sigur á Napoli
Allan í baráttunni við Josip Iliic
Allan í baráttunni við Josip Iliic
Mynd: Getty Images
Napoli 1 - 2 Atalanta
1-0 Dries Mertens ('28 )
1-1 Duvan Zapata ('69 )
1-2 Mario Pasalic ('80 )

Atalanta lagði Napoli með tveimur mörkum gegn einu í Seríu A á Ítalíu í dag.

Juventur er þegar búið að tryggja sér titilinn og er nánast frágengið að Napoli hafni í 2. sæti en liðið missteig sig .þó á heimavelli sínum í dag.

Napoli komst yfir með marki frá belgíska leikmanninum Dries Mertens 28. mínútu og stóðu leikar þannig í hálfleik. Kólumbíski framherjinn Duvan Zapata, sem var á mála hjá Napoli í fimm ár, jafnaði metin fyrir Atalanta á 69. mínútu.

Zapata búinn að eiga magnað tímabil og besta tímabil hans á Ítalíu en hann er með 26 mörk.

Mario Pasalic skoraði sigurmark Atalanta á 80. mínútu og mikilvægur sigur Atalanta staðreynd. Liðið er í fimmta sæti með 56 stig þegar fimm leikir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner