Michael Keane, miðvörður Everton, langar að sjá Everton fá þá athygli sem það á skilið fyrir frammistöðu sína gegn Manchester United í gær.
Flestar fyrirsagnir hafa snúist um lélega frammistöðu United liðsins og gagnrýni tengda henni.
„Það er eins og það er," sagði Keane í viðtali.
„United er félag sem grípur fyrirsagnirnar þegar liðinu gengur illa. Það er eitthvað sem við verðum bara að sætta okkur við."
„Við eigum skilið fullt hrós fyrir frammistöðu okkar. Við lögðum leikinn hárrétt upp og spiluðum vel. Við unnum algjörlega fyrir sigrinum."
„Við erum byrjaðir að sýna stöðugleika þrátt fyrir vonbrigði í síðustu umferð. Þrír leikir eftir og við stefnum á sigur í þeim öllum."

Athugasemdir