Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 22. apríl 2019 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo: Ég verð 1000 prósent áfram hjá Juventus
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo ætlar sér að vera áfram hjá Juventus á næstu leiktíð. Ronaldo hefur spilað vel fyrir Juventus á leiktíðinni og varð um helgina fyrsti leikmaðurinn til þess að vinna ensku úrvalsdeildina, spænsku La Liga og ítölsku Seríu A.

Eftir sigur Juventus á Fiorentina um helgina var Ronaldo spurður út í framtíð sína, tímabilið á Ítalíu og vonbrigðin í Meistaradeildinni.

„Ég verð pottþétt áfram hjá Juventus, það er 1000 prósent," sagði Ronaldo

„Þetta hefu verið ár af aðlögun og það hefur verið gott. Ég finn fyrir hamingju og velllíðan. Besta liðið vann titilinn."

„Þú getur ekki alltaf unnið en við reyndum allt hvað við gátum. Aðeins eitt lið getur unnið Meistaradeildina. Við reynum aftur á næsta ári."
Athugasemdir
banner
banner
banner