Phil Neville mun hætta sem þjálfari enska kvennalandsliðið þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Þetta segir í frétt The Guardian.
Neville mun því ekki stýra Englandi á EM á heimavelli árið 2022. Mótið átti að fara fram 2021 en því var frestað um ár eftir að EM karla og Ólympíuleikarnir í Tokyo voru færðir til næsta sumars vegna kórónuveirunnar.
Óvíst er hvort að Neville muni stýra Englandi á Ólympíuleikunum næsta sumar.
Neville er 43 ára gamall og hefur stýrt kvennalandsliðinu frá 2018. Undir hans stjórn endaði England í fjórða sæti á HM í fyrra. Eftir HM hafa úrslitin í æfingaleikjum ekki verið ásættanleg og hefur enska liðið aðeins unnið þrjá af síðustu tíu leikjum sínum.
OK all, who should replace Neville, comment below?
— Suzy Wrack (@SuzyWrack) April 22, 2020
Jill Ellis, Emma Hayes, Nick Cushing, Joe Montemurro, Laura Harvey, Casey Stoney... others. Name your woman/man
Athugasemdir