Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. apríl 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Real býður Jovic í skiptum til að lækka verðmiðann á Ruiz
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur áhuga á Fabian Ruiz, spænskum miðjumanni Napoli. Napoli er sagt vilja fá um 70 milljón punda fyrir Ruiz og er það of hátt fyrir spænsku risana. Heimildir Goal segja að verðmiðinn sé kominn niður í 52 milljónir punda vegna ástandsins í heiminum.

Real er tilbúið að bjóða Luka Jovic, framherjann sem liðið fékk frá Eintracht Frankfurt, í skiptum fyrir Ruiz og auk þess myndi Napoli fá einhverja peningaupphæð.

Jovic hefur ollið vonbrigðum hjá Madrid en hann var keyptur á 62 milljónir punda í fyrra sumar. Jovic hefur skorað tvö mörk í 24 leikjum á leiktíðinni. Napoli er sagt hafa áhuga á Serbanum og gæti hann komið í stað Arkadiusz Milik því Atletico, Juventus og AC Milan hafa áhuga á pólska framherjanum.

Real gæti lent í samkeppni um Ruiz því Manchester City er einnig sagt hafa áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner