Risatilboði Chelsea hafnað - Tekur Nuno við West Ham? - Tveir á blaði United - Ungur miðvörður til Arsenal?
banner
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
fimmtudagur 11. september
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. september
Undankeppni HM
mánudagur 8. september
Undankeppni EM U21
sunnudagur 7. september
Besta-deild kvenna
föstudagur 5. september
Undankeppni HM
laugardagur 30. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Lengjudeild karla
miðvikudagur 27. ágúst
Forkeppni Meistaradeildarinnar
mánudagur 25. ágúst
föstudagur 22. ágúst
Besta-deild kvenna
Mjólkurbikar úrslit
mánudagur 18. ágúst
Besta-deild karla
laugardagur 16. ágúst
Mjólkurbikar kvenna
fimmtudagur 14. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
þriðjudagur 16. september
Engin úrslit úr leikjum í dag
fös 22.apr 2022 14:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 8. sæti

Keppni í Bestu kvenna hefst 26. apríl. Fótbolti.net mun næstu daga opinbera spá fyrir deildina í sumar. Liðin verða kynnt eitt af öðru.

Jonathan Glenn
Jonathan Glenn
Mynd/Knattspyrnudeild ÍBV
Fyrirliðinn Ragna Sara
Fyrirliðinn Ragna Sara
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Olga er einn af lykilmönnum ÍBV.
Olga er einn af lykilmönnum ÍBV.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þóra Björg
Þóra Björg
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhildur er komin aftur í lið ÍBV
Þórhildur er komin aftur í lið ÍBV
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvort verður Guðný eða Lavinia Boanda í markinu í sumar?
Hvort verður Guðný eða Lavinia Boanda í markinu í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4 ?
5 ?
6. ?
7. ?
8. ÍBV
9. KR
10. Keflavík

8. sæti ÍBV (sleppa við fall)

Lokastaða í fyrra: 7. sæti, átta stigum fyrir ofan fallsæti. ÍBV tók fimmtán stig á heimavelli og sjö stig á útivelli í fyrra.

Þjálfarinn: Jonathan Glenn er á leið inn í sitt fyrsta tímabil sem þjálfari í efstu deild. Glenn hefur verið í eyjum í nokkur ár, kom fyrst til Íslands árið 2014 og lék með ÍBV í tvö tímabil áður en hann fór í höfuðborgina. Hann sneri svo aftur til eyja fyrir tímabilið 2019. Mikkel Vandal Hasling er Glenn til aðstoðar.

Álit Eiðs
Eiður Ben Eiríksson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu kvenna en hann var síðustu ár annar af þjálfurum Vals. Hér er álit Eiðs á liði ÍBV.

„Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að tímabilið 2021 hófst.
Það vantaði ekki eyja stemmninguna í fyrra og var erfitt fyrir öll lið að mæta ÍBV.
Eftir þjálfaraskipti á miðju sumri ásamt því að missa flesta útlendingana og fá inn nýja í þeirra stað kemur liðið einnig með glænýjan þjàlfara og tvær reynslumiklar eyjakonur til leiks í ár."


Orðnar árinu eldri
„Undanfarin ár hafa yngri leikmenn úr eyjum fengið að gera sín mistök í bland við erlenda leikmenn. Leikmenn eins og Ragna, Thelma, Þóra og Helena eru nú komnar með hellings reynslu í efstu deild og hinn leiðinlegi frasi “eru árinu eldri” á vel við núna. Það eru spennandi hlutir í gangi hjá ÍBV en það eru tvö til þrjú ár af þolinmæði framundan ef liðið ætlar sér að taka þátt í einhverju sem heitir toppbarátta.

Liðið gæti sogast í fallbaráttu, en heimavöllurinn er ásamt Origo vellinum og Kópavogsvelli sá erfiðasti að koma á og það er og verður mikill styrkleiki. Það yrði jákvætt fyrir eyjastúlkur að tryggja veru sína í deildinni snemma líkt og þær hafa gert undanfarin ár, að þjálfarinn og liðið nái að móta sinn leikstíl í gegnum sumarið og halda áfram að byggja upp þá leikmenn sem eru að koma út starfinu.

ÍBV á helling af leikmönnum út um allt land og gæti auðveldlega smíðað saman lið sem gæti verið í toppbaráttu einungis skipað heimakonum. Með jákvæðri spilamennsku og gleði mun það skila sér út á við og væri hægt að byggja upp lið á komandi árum sem er samkeppnishæft í efri hluta deildarinnar.

Komið fagnandi"


Lykilmenn: Olga Sevcova, Þóra Björg Stefánsdóttir og Ameera Hussen

Gaman að fylgjast með:
Guðný Geirdóttir hefur verið á bekknum undanfarin ár hjá ÍBV en fékk óvænt kall frá Selfossi rétt fyrir mót og svo sannarlega greip gæsina. Það verður spennandi að sjá hvernig henni mun vegna í sumar.

Komnar:
Ameera Hussen frá Bandaríkjunum
Haley Thomas frá Bandaríkjunum
Kristín Erna Sigurlásdóttir frá Ítalíu
Lavinia Boanda frá Rúmeníu
Sandra Voitane frá Austurríki
Sydney Carr frá Bandaríkjunum
Þórhildur Ólafsdóttir frá Fylki (spilaði síðast 2018)

Farnar:
Annie Williams til Svíþjóðar
Auður S. Scheving í Val (var á láni)
Clara Sigurðardóttir í Breiðablik
DB Pridham til Svíþjóðar
Eliza Spruntule hætt
Kristina Erman til Belgíu
Liana Hinds
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Jóhanna Helga Sigurðardóttir
Kristjana Sigurz Kristjánsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Ingunn Þóra Kristjánsd. Sigurz í Breiðablik (var á láni)
Athugasemdir