Framtíð franska landsliðsmannsins Antoine Griezmann er mikið í umræðunni þessa dagana enda er hann búinn að gefa það út að hann ætli sér að yfirgefa Atletico Madrid í sumar eftir fimm ára dvöl hjá félaginu.
Griezmann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona, Ivan Rakitic leikmaður Barcelona segir að það yrði frábært ef að Griezmann myndi spila í sama liði og hann.
„Ég hef alltaf kunnað að meta hann ef ég tek ekki með í dæmið síðasta sumar þegar hann ásamt fleirum kom í veg fyrir það að við í Króatíu yrðum heimsmeismeistarar. Hann er heimsklassa leikmaður, einn af þeim bestu í heiminum og auðvitað yrði ég ánægður ef hann myndi spila í sama liði og ég," sagði Rakitic.
„Hann er frábær atvinnumaður sem hefur nánast unnið allt, hann er leikmaður sem myndi styrkja hvaða lið sem er," sagði Rakitic um Griezmann.
Athugasemdir