Byrjunarlið Brasilíu og Kosta Ríka eru klár en liðin eigast við í hádegisleik dagsins.
Liðin eru í E-riðli og þurfa bæði á sigri að halda í dag en Brasilía gerði jafntefli við Sviss í fyrsta leik á meðan Kosta Ríka tapaði fyrir Serbíu.
Brasilía gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliði sínu frá síðasta leik þar sem Danilo, bakvörður Manchester City fer á bekkinn og inná í hans stað kemur bakvörður Corinthians, Fagner.
Neymar haltraði af æfingu liðsins í vikunni en er klár í að byrja.
Kosta Ríka gerir einnig eina breytingu á byrjunarliði sínu frá síðasta leik þar sem Bryan Oviedo kemur inn fyrir Francisco Calvo.
Brasilía
Alisson; Fagner, Thiago Silva, Miranda, Marcelo, Paulinho, Casemiro, Coutinho, Willian, Gabriel Jesus, Neymar
Kosta Ríka
Navas; Duarte, González, Acosta, Gamboa, Borges, Guzmán, Oviedo, Ruiz, Venegas, Ureña
Athugasemdir