Líklega farið í 3-5-2
Nígeríumenn hafa tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi klukkan 15:00. Alex Iwobi, leikmaður Arsenal, fer á bekkinn eftir að hafa ekki náð sér á strik í 2-0 tapi gegn Króatíu um síðustu helgi.
Odion Ighalo, fyrrum framherji Watford, er einnig á bekknum en hann byrjaði einn frammi gegn Króatíu.
Allt bendir til þess að Nígería spili 3-5-2 og þeir Leicester félagar Ahmed Musa og Kelechi Iheanacho verði fremstu menn.
Fyrirliðinn John Obi Mikel verður væntanlega fremstur á miðju líkt og í leiknum gegn Króatíu.
.@NGSuperEagles XI vs #Iceland #SoarSuperEagles #NGA #WorldCup #NGAISL pic.twitter.com/zFRfmXH5TL
— 🇳🇬 Super Eagles (@NGSuperEagles) June 22, 2018
Athugasemdir