Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 22. júní 2018 11:40
Ingólfur Páll Ingólfsson
Carvajal: Ronaldo gerir það sem er best fyrir Ronaldo
Mynd: Getty Images
Dani Carvajal, varnarmaður Real Madrid segir að hann viti ekki hvort Cristiano Ronaldo verði áfram á Bernabeu á næstu leiktíð og að framherjinn muni geri það sem er best fyrir hann sjálfan.

Ronaldo talaði í þátíð um tíma sinn hjá Madrid eftir sigur liðsins í úrslitum meistaradeildarinnar.

Dani Carvajal sagði í nýlegu viðtali að aðeins Ronaldo vissi hvað myndi gerast næst á hans ferli.

Ég veit ekki hvort að hann sé á förum, hann veit það sjálfur. Eftir úrslitaleikinn hef ég ekki verið í miklu sambandi við hann," sagði Carvajal.

Carvajal hefur viðurkennt að vera ekki náinn Ronaldo persónulega en vonast eftir því að hann verði áfram hjá félaginu.

Ég ætla ekki að spyrja hann hvort að hann fari eða ekki. Það er hans ákvörðun. Ég vona að hann verði áfram en ef hann fer þá mun hann gera það sem er best fyrir hann sjálfan," sagði Carvajal.
Athugasemdir
banner
banner
banner