Hjálmar Örn, skemmtikraftur og stuðningsmaður Íslands er mættur til Volgograd og meira en tilbúinn í verkefni dagsins, að öskra okkar menn áfram.
„Nú má partýið byrja,núna er svolítið kampavínsfólkið farið og 'real fans' eftir og ég held að þetta verði brjálað partý núna, brjálað," sagði Hjálmar.
Hjálmar var sáttur með sigurinn hjá Króatíu í gær.
„Frábær, er þetta ekki frábært fyrir okkur? Viljum við ekki sjá Króatana hvíla og vera með eitthvað varalið. Einhverja gaura sem við höfum aldrei heyrt um," sagði Hjálmar.
Þá er Hjálmar spenntur fyrir leiknum og reiknar með iðnaðarsigri í dag.
„Það er risaleikur og sigur yrði stórkostlegt, ég er búinn að spá þessu 2-0 fyrir Íslandi. algjör iðnarasigur, 1-0 í hálfleik og 1-0 í seinni hálfleik," sagði Hjálmar.
Hjálmar virðist njóta lífsins í sólinni og segist furðu fljótur að aðlagast hita, eitthvað sem hann vonar að strákarnir í landsliðinu geri líka. Þetta hressa viðtal má sjá hér að ofan.
Athugasemdir