Það var heljarinnar partý hér á Íslandi þegar Strákarnir okkar gerðu stórkostlegt jafntefli gegn Lionel Messi og félögum í Argentínu.
Nú er hins vegar komið að partýi númer tvö, gegn Nígeríu.
Nígería tapaði gegn Króatíu nokkuð örugglega og koma án efa dýrvitlausir inn í þennan leik.
Sigur Króatíu á Argentínu í gærkvöldi eykur mikilvægi þessa leiks til muna en bæði lið geta með sigri komið sér í fína stöðu fyrir lokaumferðina.
Í E-riðli eru svo tveir leikir. Neymar og félagar í Brasilíu mæta Kosta Ríka og þá mætast Serbía og Sviss.
Serbía vann Kosta Ríka í fyrstu umferð en Brasilía og Sviss skildu jöfn.
D-riðill
15:00 Ísland - Nígería
E-riðill
12:00 Brasilía - Kosta Ríka
18:00 Serbía - Sviss
Athugasemdir