Nwankwo Kanu, einn besti fótboltamaður sem komið hefur frá Nígeríu, gerði myndband í morgun fyrir leik sinnar þjóðar gegn Íslandi á HM eftir.
Kanu, sem lék lengi vel í ensku úrvalsdeildinni með Arsenal, Portsmouth og West Brom, er greinilega spenntur fyrir leiknum á eftir. Leikurinn hefst 15:00.
Kanu, sem lék lengi vel í ensku úrvalsdeildinni með Arsenal, Portsmouth og West Brom, er greinilega spenntur fyrir leiknum á eftir. Leikurinn hefst 15:00.
„Ég óska ykkur alls hins besta, allir eru með ykkur," segir Kanu í myndbandinu eftir að hann biður liðið um að ná í sigur.
Kanu lék 87 landsleiki fyrir Nígeríu og skoraði 12 mörk í þeim
Hér að neðan er myndbandið frá Kanu, sem er orðinn 41 árs að aldri. Hann lagði skóna á hilluna 2012.
Common super eagles. Common Nigeria. Let’s go get that 3 points #russia2018 #thebeautifulgame #nigeria #iceland #supereagles #positivevibes pic.twitter.com/7O8Z9PxmNl
— Kanu Nwankwo (@papilokanu) June 22, 2018
Athugasemdir