Varnarmaðurinn, Ragnar Sigurðsson fékk spark í höfuðið í þann mund sem Nígería komst yfir gegn í Stalíngrad í upphafi seinni hálfleiks.
Nígeríumaðurinn, Ahmed Musa sparkaði í höfuð Ragnars í þann mund sem hann kom Nígeríu yfir í leiknum 1-0.
Nígeríumaðurinn, Ahmed Musa sparkaði í höfuð Ragnars í þann mund sem hann kom Nígeríu yfir í leiknum 1-0.
Stöðva þurfti leikinn í tæpar fimm mínútur vegna atviksins, en gera þurfti að sárum Ragnars
Á tímabili leit út fyrir að Ragnar þyrfti að fara af velli en kallað var til sjúkrateymis Íslands sem og að öryggisverðir á vellinum komu inn á völlinn með börur.
Ragnar stóð þó sjálfur upp þegar búið vera að hlúa að honum og hann er kominn aftur inn á völlinn, með bleikt sjúkrabindi yfir hausnum.
Raggi kominn með bleikt sárabindi um hausinn og fær nýja treyju #fotboltinet pic.twitter.com/hYMOdnTNEX
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) June 22, 2018
Athugasemdir