Grótta og Magni áttust við í dag þegar Grótta sigraði sannfærandi 4 - 1 gegn slöku liði Magna á Seltjarnarnesi í dag.
Lestu um leikinn: Grótta 4 - 1 Magni
Arnar Geir Halldórsson fyrirliði og leikmaður Magna var tekinn í viðtal við hann eftir leik.
„Manni líður ekkert vel eftir þetta, það er alltaf sama sagan hjá okkur. Það er stöðugleiki hjá okkur við töpum alltaf 4 - 1 á útivelli."
Magni hefur enn ekki náð stigi á útivelli í deildinni og hafa tapað öllum þeim leikjum 4 - 1.
Arnar var einnig spurður út í Gróttu og lið þeirra.
„Þeir eru hörkuvel spilandi og þetta eru mjög efnilegir strákar en við eigum alveg að geta keppt við þá."
Magni á leik við Víking Ólafsvík í næstu umferð.
Athugasemdir