banner
   lau 22. júní 2019 10:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Böddi löpp rölti um Kaplakrika og fór yfir fyrri störf
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar Böðvarsson, eða Böddi löpp, var tekinn fyrir í nýjasta þættinum af netsjónvarpsþættinum Fimleikafélaginu.

Böðvar er uppalinn hjá FH, en leikur í dag með pólska úrvalsdeildarfélaginu Jagiellonia Bialystok.

„Við hittum Böðvar Böðvarsson í hálfleik á leik Stjörnunnar og FH og nýttum tækifærið í sérstaka viðhafnarútgáfu Fimleikafélagsins þar sem hann fór aðeins yfir sín fyrri störf fyrir félagið," segir á Facebook-síðunni FH-ingar.net.

Í þættinum hittir hann meðal annars föður sinn, Gunnar Nielsen og Þorkel Mána Pétursson.

Hann ræðir líka um Atla Guðnason, Davíð Þór Viðarsson og Heimir Guðjónsson, fyrrum þjálfara sinn hjá FH. Heimir var alltaf skemmtilegur á styrktaræfingum.

Hér að neðan má sjá þáttinn.

Sjá einnig:
Miðjan - Böddi löpp um erfiða tíma hjá fjölskyldunni, sigrana og vonbrigðin


Athugasemdir
banner
banner
banner