Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 22. júní 2019 16:18
Benjamín Þórðarson
Byrjunarlið ÍA og HK: Stefán Teitur og Arnar Már snúa aftur
Stefán Teitur snýr aftur eftir veikindi.
Stefán Teitur snýr aftur eftir veikindi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atla er á bekknum hjá HK.
Emil Atla er á bekknum hjá HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 17:00 hefst leikur ÍA og HK í Pepsi Max-deildinni á Akranesi. Leikurinn er í níundu umferð deildarinnar og bæði lið koma inn með tvö töp á bakinu í röð.

Þess má geta að frítt er á leikinn í boði Norðuráls vegna Norðurálsmótsins sem fram fer um helgina á Akranesi.

Hjá heimamönnum í ÍA eru gerðar þrjár breytingar frá síðasta leik á móti KR sem tapaðist 1-3. Út fara þeir Arnór Snær Guðmundsson, Einar Logi Einarsson og Albert Hafsteinsson. Í þeirra stað koma Stefán Teitur Þórðarson, Arnar Már Guðjónsson og Þórður Þorsteinn Þórðarson.

Hjá gestunum í HK eru gerðar tvær breytingar frá 2-1 tapinu gegn Víkingi R. í síðustu umferð deildarinnar. Út fara Emil Atlason og Kári Pétursson og í þeirra stað koma Bjarni Gunnarsson og Valgeir Valgeirsson.

Byrjunarlið ÍA
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson
7. Þórður Þorsteinn Þórðarson
8. Hallur Flosason
9. Viktor Jónsson
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
11. Arnar Már Guðjónsson
18. Stefán Teitur Þórðarson
22. Steinar Þorsteinsson
93. Marcus Johansson

Byrjunarlið HK
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
3. Hörður Árnason
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Ásgeir Marteinsson
10. Bjarni Gunnarsson
18. Atli Arnarson
22. Arnþór Ari Atlason
24. Björn Berg Bryde
29. Valgeir Valgeirsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner