Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. júní 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Copa America í dag - Fyrsti riðillinn klárast
Mynd: Getty Images
Í kvöld klárast fyrsti riðillinn af þremur í Suður-Ameríku bikarnum, Copa America.

A-riðillinn klárast með tveimur leikjum sem hefjast báðir klukkan 19:00 og eru báðir sýndir í beinni á sportrásum Stöðvar 2.

Brasilía, sem er á heimavelli á þessu móti, mætir Perú og í hinum leiknum mætast Bólivía og Venesúela.

Fyrir leikina eru Brasilía og Peru með fjögur stig, Venesúela með tvö stig og Bólivía án stiga. Tvö lið fara áfram úr riðlinum og þriðja gæti mögulega fylgt með. Tvö af liðunum þremur í þriðja sæti riðlanna fara einnig áfram í 8-liða úrslit.

Leikir kvöldsins:
19:00 Perú - Brasilía (Stöð 2 Sport)
19:00 Bólivía - Venesúela (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner